Skógræktarfélag Hafnarfjarðar, verkstæðishús, erindi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1851
19. ágúst, 2020
Annað
Fyrirspurn
9. liður úr fundargerð bæjarráðs dags. 13. ágúst sl.
Tekið fyrir að nýju til afgreiðslu. Í samræmi við fyrirliggjandi minnisblað bæjarlögmanns samþykkir bæjarráð að fella niður gatnagerðargjald af verkstæðishúsi Skógræktarfélags Hafnarfjarðar sem fyrirhugað er að reisa á athafnasvæði skógræktarinnar með vísan sérstakra lækkunarheimilda í 6. gr. samþykktar um gatnagjald í Hafnarfjarðarkaupstað nr. 242/2016 sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um gatnagerðargjöld nr. 153/2006. Erindinu er vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
Svar

Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.