Covid 19, aðgerðaráætlun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarráð nr. 3560
5. nóvember, 2020
Annað
Fyrirspurn
Farið yfir. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs sat fundinn undir þessum lið.
Svar

Farið yfir stöðuna. Í samræmi við 8. lið úr aðgerðaráætlun bæjarstjórnar Hafnarfjarðar vegna Covid19 faraldursins samþykkir bæjarráð að heimilt verði að fella niður leigu á þá aðila þar sem fjöldatakmarkanir hafa haft áhrif á rekstur og tekjustreymi. Beiðni ásamt greinargerð skal send á fjárreiðudeild Hafnarfjarðar fyrir 15. nóvember nk.