Flatahraun, hringtorg við Skútahraun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 712
25. ágúst, 2020
Annað
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 30.06.2020 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kaplakrika, reits 3.2.3, vegna gatnamóta Flatahrauns og Skútahrauns við Kaplakrika, skv. 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr 123/2010. Bæjarráð Hafnarfjarðar í umboði bæjarstjórnar staðfesti afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs á erindinu þann 02.07.2020. Tillagan var auglýst frá 10.07. til 21.08.2020. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkir að ljúka erindinu skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.