Hamranes, deiliskipulag reitir 6,10 og 11
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1851
19. ágúst, 2020
Annað
Fyrirspurn
10. liður úr fundargerð skipulags- og byggingarráðs dags. 11. ágúst sl. Með vísan til bréf Skipulagsstofnunar frá 7/5 s.l. er deiliskipulagið tekið til umfjöllunar á ný. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags.5/8 2020. Skipulags- og byggingarráð samþykkir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 05.08.2020 um birtingu auglýsingu um gildistöku deiliskipulags fyrir reiti 6,10 og 11. Erindinu er jafnframt vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Svar

Ingi Tómasson tekur til máls.

Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.