Lántökur 2020
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1854
30. september, 2020
Annað
Fyrirspurn
7.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 24.september sl. Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn samþykki eftirfarandi bókun: Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins: Bæjarstjórnar Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 932.000.000.- kr. til 35 ára, með lokagjalddaga 2055 í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggur fyrir fundinum. Af lánsfjárhæð er um 320 m.kr. til að ljúka fjármögn á erlendu kúluláni sem er á eindaga á árinu og 612 m.kr. vegna fjármögnunar Skarðshlíðarskóla. Verkefnin hafa almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Til tryggingar lánunum standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja heimild til skammtímafjármögnunar allt að 947 milljónir króna þar til gengið verður frá endanlegri fjármögnun. Skammtímalánið ber 1,2% vexti óverðtryggt, mv. stöðuna í dag og verður greitt upp þegar endanleg fjármögnun á langtímaláni vegna fjármögnunar á byggingu á Skarðshlíðarskóla. Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamninga við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Svar

Til máls tekur Friðþjófur Helgi Karlsson. Til andsvars kemur Rósa Guðbjartsdóttir. Friðþjófur Helgi svarar andsvari.

Þá tekur Guðlaug Kristjánsdóttir til máls.

Einnig tekur Jón Ingi Hákonarson til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu bæjarráðs um lántöku.