Rekstrarsamningur Kaplakrika og afnotasamningur knatthússins Skessunnar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1863
3. febrúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
7.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 28.janúar sl. Tekið fyrir erindi FH um framlengingu á rekstrarsamningi.
Geir Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi mætir til fundarins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi framlengingu á rekstrarsamningi milli Hafnarfjarðarbæjar og FH.
Svar

Ágúst Bjarni Garðarsson tekur til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlengingu á fyrirliggjandi rekstrarsamningi.