Hafnarsvæði, Aðalskipulagsbreyting
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 1865
3. mars, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
1. liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 23.febrúar sl. Lögð fram greinargerð um breytingu á aðalskipulagi hafnarsvæðisins ásamt uppdrætti aðalskipulagsbreytingar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir greinargerð og uppdrátt aðalskipulagsbreytingarinnar og vísar erindinu til hafnarstjórnar og bæjarstjórnar til staðfestingar.
1. liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 26.febrúar sl. Hafnarstjórn lagði þann 24.2.2021 til endurskoðun á þeim þætti skipulagsins sem snýr að innri höfninni með vísan til Hafnarreglugerðar fyrir Hafnarfjarðarhöfn og vísaði málinu til frekari yfirferðar hjá skipulags- og byggingarráði. Lögð fram uppfærð greinargerð og uppdráttur aðalskipulagsbreytingar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir uppfærða greinargerð og uppdrátt aðalskipulagsbreytingarinnar og vísar erindinu til hafnarstjórnar og bæjarstjórnar til staðfestingar.
1.liður úr fundargerð hafnarstjórnar frá 26.febrúar sl. Lögð fram greinargerð um breytingu á aðalskipulagi hafnarsvæðisins ásamt uppdrætti aðalskipulagsbreytingar.
Hafnarstjórn samþykkir uppfærða greinargerð og uppdrátt aðalskipulagsbreytingarinnar og vísar erindinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Svar

Til máls tekur Kristín Thoroddsen. Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu hafnarstjórnar og skipulags- og byggingarráðs.