Hraun vestur, gjótur, deiliskipulag
Síðast Frestað á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 1851
19. ágúst, 2020
Annað
Fyrirspurn
12. liður úr fundargerð skipulags- og byggingarráðs dags. 11. ágúst sl. Tekin fyrir á ný tillaga að uppbyggingu á reit sem liggur að Reykjavíkurvegi, Hjallahrauni og Helluhrauni. Tillaga Tendru arkitekta dags. 28. maí 2020 að deilskipulagi reits sem nær til lóða við Reykjavíkurveg 60-62 og Hjallahrauns 2-4 lögð fram auk greinargerðar deiliskipulagsins dags. 28. maí 2020 og umsögnum frá Veðurvaktinni og Verkfræðistofu VSÓ. Tillaga að deiliskipulagi var samþykkt á fundi skipulags- og byggingarráðs 2. júní s.l. og að málsmeðferð yrði í samræmi við 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Erindinu var jafnframt vísað til staðfestingar í bæjarstjórn. Bæjarstjórn staðfesti erindið þann 10. júní. Deiliskipulagið var auglýst frá 25/6 - 6/8. Engar athugasemdir bárust. Skipulags- og byggingaráð samþykkir fyrirliggjandi deiliskipulabreytingu og vísar henni til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Fulltrúi Bæjarlistans bókar eftirfarandi: Þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir minnihlutans ætlar meirihluti Sjálfstæðismanna og Framsóknar að þröngva í gegn nýju deiliskipulagi fyrir reitinn Hraun vestur. Samkvæmt þessu nýja deiliskipulagi er byggingamagnið á reitnum stórlega aukið og gert ráð fyrir 490 íbúðum eða um 1.400 íbúum á þessum litla reit. Um þetta er ekki samstaða meðal bæjarbúa. Engar haldbærar skýringar hafa fengist hjá meirihlutanum varðandi ástæðu fyrir þessari breytingu. Enginn skilur hvað meirihlutanum gengur til enda hefur hann ekki haft fyrir því að efna til kynningarfundar um málið. Augljóst er að meirihlutinn lætur ekkert stoppa sig í þessum ásetningi, hvorki Skipulagsstofnun eða skynsamleg rök frá bæjarbúum. Athugasemdum og ábendingum hefur meirihlutinn svarað á þann hátt að þar hljóti að liggja að baki annarleg sjónarmið og örvænting. Þetta er nú öll fagmennskan.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar bóka eftirfarandi:
Hér er um að ræða nýja deiliskipulagstillögu og var íbúafundur haldinn um málið þann 9. júlí kl. 17. Fundinum var einnig streymt á vef bæjarfélagsins auk þess sem engar athugasemdir bárust við fyrirliggjandi tillögu. Það sem fram kemur því í bókun fulltrúa Bæjarlistans er því efnislega rangt en slíkt kemur því miður ekki á óvart og er í raun framhald af því sem verið hefur.
Fyrirliggjandi deiliskipulagstillaga opnar á fjölbreytta byggð íbúðar-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Tillagan fellur vel að markmiðum svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins þar sem meginstefnan er uppbygging og þétting byggðar við miðkjarna og önnur samgöngumiðuð þróunarsvæði og að hlutfall íbúðabyggðar á þeim svæðum vaxi úr 30% í 66%. Landsvæðið liggur að fyrirhugðuðum samgönguás Borgarlínu sem styrkir markmið svæðisskipulagsins og þéttingu byggðar. Fyrirliggjandi deiliskipulagstillaga gerir ráð fyrir að með bættum almenningssamgöngum muni þeim bílastæðum, sem tillagan gerir ráð fyrir ofanjarðar fækka til að auka umhverfisgæði á útivistarsvæði.
Þá er deiliskipulagstillagan í samræmi við þá framtíðarsýn og hugmyndir sem settar eru fram í rammaskipulagsdrögum fyrir Hraun vestur. Í greinargerð aðalskipulagsins er gerð góð grein fyrir leik- og grunnskólum ásamt opnum grænum svæðum. Gert er ráð fyrir uppbyggingu á öllu svæðinu, Hraun vestur, geti tekið allt að 20 árum og gera má ráð fyrir ýmsum breytingum á því tímabili er varðar samgöngur og samfélag sem getur haft áhrif á skipulag framtíðar.
Svar

Ingi Tómasson tekur til máls. Einnig tekur Ágúst Bjarni Garðarsson til máls. Til andsvars kemur Friðþjófur Helgi Karlsson. Ágúst Bjarni svarar andsvari og kemur Friðþjófur næst til andsvars öðru sinni.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs með 7 atkvæðum frá fulltrúum meirihlutans og Miðflokksins. Fulltrúar Viðreisnar og Bæjarlistans greiða atkvæði á móti en fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá.

Guðlaug Kristjánsdóttir kemur að svohljóðandi bókun:

Bæjarfulltrúi Bæjarlistans tekur undir bókanir fulltrúa listans í skipulags- og byggingarráði og áréttar að líkt og ljóst má vera af þeim bókunum er andstaða í okkar röðum við málið.

Jón Ingi Hákonarson kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúi Viðreisnar bókar eftirfarandi

Hið mikla byggingarmagn sem lagt er til í deiluskipulagstillögunni er ekki í neinu samræmi við þá heildarsýn sem lagt var upp með við gerð rammaskipulags. Hætt er við að ef allir lóðarhafar fá sjálfdæmi um það hvað á að byggja mikið þá verði hverfið ekki "nýtt glæsilegt andlit Hafnarfjarðar sem mun gera okkur öll stolt af því að bjóða gesti og nýja íbúa velkomna" eins og sagði í kynningu á rammaskipulaginu á sínum tíma. Það vekur upp ýmsar spurningar um hvað meirihlutanum gengur til þegar lagt er milljóna kostnað við gerð skipulagslýsinga og rammaskipulaga sem hann hefur í raun engan hug á að fylgja eftir.

Árni Rúnar Þorvaldsson kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar benda á að fyrirliggjandi tillaga að deiliskipulagi fyrir Hraun vestur, gjótur, víkur í meginatriðum frá vandaðri vinnu við rammaskipulag fyrir hverfið sem var kynnt íbúum og samþykkt í skipulags- og byggingaráði. Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks fullyrðir að tillagan sé í samræmi við rammaskipulagið en horfir fram hjá því að verið er að auka byggingarmagnið verulega, mikilli fjölgun bílastæða og fækkun grænna reita. Hæðir húsa fara úr 4-6 í 8 hæðir með tilheyrandi skuggavarpi og vindþrýstingi. Þá hefur ekki verið gerð áætlun um hvernig þessa mikla frammúrkeyrsla hefur á hverfið í heild sinni hvað varðar skólamál, umferð og gæði byggðar. Samráðið við íbúa um gerð rammaskipulags fjallaði ekki um þetta og hér skortir skýra framtíðarsýn um mikilvæga uppbyggingu. Af þessum ástæðum geta fulltrúar Samfylkingarinnar ekki stutt tillöguna.

Ágúst Bjarni kemur að svohljóðandi bókun:

Bókun fulltrúa meirihluta og fulltrúa Miðflokksins