Vatnsvernd höfuðborgarsvæðisins, fyrirspurn
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1820
6. febrúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
6.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 29.janúar sl. Þann 24. janúar barst erindi frá Vegagerðinni þar sem óskað er eftir afstöðu Hafnarfjarðarbæjar vegna fyrirhugaðrar lokunar syðri hluta Bláfjallavegar, suður undir Leiðarenda, og lagfæringar á norðurhluta Bláfjallavegar.
Skipulags- og byggingarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Svar

Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson. Einnig tekur til máls Guðlaug Kritjánsdóttir. Því næst Sigurður Þ. Ragnarsson, og þarnæst Helga Ingólfsdóttir. Sigurður Þ. Ragnarsson kemur að andsvari. Ólafur Ingi Tómasson kemur einnig að andsvari.

Til máls tekur Friðþjófur Helgi Karlsson. Einnig tekur til máls Kristín Thoroddsen.

Rósa Guðbjartsdóttir tekur til máls. Hún ber upp tillögu um að vísa málinu til bæjarráðs til umfjöllunar.

Tillagan samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum