Lónsbraut 52, dagsektir, hús ekki í samræmi við samþykktar teikningar
Lónsbraut 52
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 723
27. september, 2018
Annað
Fyrirspurn
Lónsbraut 52, bátaskýli, búið er að setja svalir á norðurhlið og stóran glugga á suðurhlið án leyfis, eigandi fékk bréf þess efnis og hefur ekki brugðist við.
Svar

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir á eiganda að Lónsbraut 52. Húsið að Lónsbraut 52 er ekki í samræmi við samþykktar teikningar. Eiganda hefur verið sent bréf þess efnis og ekki brugðist við. Dagsektir verða lagðar á frá og með 10. okt 2018 og eru 20.000 kr á dag í samræmi við lög um mannvirki 160/2010.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 121125 → skrá.is
Hnitnúmer: 10033454