Selvogsgata 3, endurbygging á geymslu
Selvogsgata 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 658
25. september, 2018
Annað
Fyrirspurn
Kjartan Freyr Ásmundsson og Helga Ágústsdóttir sóttu þann 25.7. s.l. um endurbyggingu á geymslu og stækkun hennar samkvæmt teikningum Sveins Valdimarssonar dags. 16.7.2018. Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkti með vísan til 2.gr. í Samþykkt um embættisafgreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúans í Hafnarfirði frá 4.5.2004 að umsókn Kjartans F. Ásmundssonar dags. 25.7.2018 yrði grenndarkynnt fyrir eigendum/íbúum Selvogsgötu 1, 4, 5, og 6, Brekkugötu 25 og 26 og Hringbraut 10. Athugasemdir bárust frá eiganda og íbúa að Brekkugötu 25. Lögð fram greinagerð skipulagsfulltrúa vegna athugasemda dags. 17.9.2018.
Svar

Skipulags- og byggingarráð óskar eftir umsögn stjórnsýslusviðs.