Hamraneslína, bráðabirgðaflutningur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 650
22. maí, 2018
Samþykkt
1
Fyrirspurn
Tekin til umræðu á ný breyting á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna færslu á háspennulínu við Hamranes. Lögð fram skipulagslýsing dags. 22. maí 2018.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða skipulagslýsingu dags. 22.05.2018 með vísan til 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 1. og 2. mgr. 30 gr. sömu laga. Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja skipulagalýsinguna á grundvelli ofangreindra lagaákvæða.