Hamraneslína, bráðabirgðaflutningur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 1809
22. ágúst, 2018
Annað
Fyrirspurn
2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 14.ágúst sl. Lögð fram breyting með vísan til 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 08.08.2018 er varðar færslu á háspennulínu við Hamranes. Skipulagslýsing dags. 22. maí 2018 var samþykkt 10.07.2018 í skipulags- og byggingarráði. Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 19.07.2018 um ákvörðun á matskyldu.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 08.08.2018. Jafnframt er samþykkt að málsmeðferð verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga 123/2010 er varðar breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025.
Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn Hafnarfjarðar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 08.08.2018 og að málsmeðferð verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga 123/2010 er varðar breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025."
Svar

Ólafur Ingi Tómasson tekur til máls. Til andsvars kemur bæjarstjóri Rósa Gubjartsdóttir.

Til máls tekur Jón Ingi Hákonarson. Til andsvars kemur Ólafur Ingi Tómasson.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir samhljóða framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025, dags. 08.08.2018, og að málsmeðferð verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025.