Hamraneslína, bráðabirgðaflutningur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 654
14. ágúst, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram breyting með vísan til 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 08.08.2018 er varðar færslu á háspennulínu við Hamranes. Skipulagslýsing dags. 22. maí 2018 var samþykkt 10.07.2018 í skipulags- og byggingarráði. Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 19.07.2018 um ákvörðun á matskyldu.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 08.08.2018. Jafnframt er samþykkt að málsmeðferð verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga 123/2010 er varðar breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025.

Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn Hafnarfjarðar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 08.08.2018 og að málsmeðferð verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga 123/2010 er varðar breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025."