Hamraneslína, bráðabirgðaflutningur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 657
17. september, 2018
Samþykkt
‹ 1
2
Fyrirspurn
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar mótt. 11.09.2018 vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi. Jafnframt lögð fram lagfærð breyting m.t.t. bréfs skipulagsstofnunar og með vísan til 1. mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 08.08.2018 er varðar færslu á háspennulínu við Hamranes. Skipulagslýsing dags. 22. maí 2018 var samþykkt 10.07.2018 í skipulags- og byggingarráði.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða lagfærða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 08.08.2018. Jafnframt er samþykkt að málsmeðferð verði í samræmi við 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025.

Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn Hafnarfjarðar:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir framlagða leiðrétta tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 13.09.2018 og að málsmeðferð verði í samræmi við 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025.