Skíðasvæðin, framtíðarsýn, samstarfssamningur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1843
4. mars, 2020
Annað
Fyrirspurn
7.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 27.febrúar sl. Afgreiðslu frestað á fundi bæjarráðs 13.febr.sl.
Lögð fram tillaga að breytingu á samkomulagi um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 7.maí 2018.
Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.
Bæjarráð vísar framlögðum viðauka, við Samkomulag um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 7. maí 2018, til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Svar

Til máls taka Rósa Guðbjartsdóttir.

Einnig Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur Rósa Guðbjartsdóttir og svarar Guðlaug andsvari.

Þá tekur til máls Sigrún Sverrisdóttir.

Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum fyrirliggjandi breytingu á samkomulagi um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 7.maí 2018. Þau Sigurður Þ. Ragnarsson og Guðlaug Kristjánsdóttir greiða atkvæði á móti.

Sigrún Sverrisdóttir kemur að svohljoðandi bókun:

Um leið og fulltrúar Samfylkingar fagna því að farið verði í löngu tímabærar viðhalds og uppbyggingar aðgerðir í Bláfjöllum og Skálafelli þá er ljóst að þær tillögur sem við afgreiðum í dag varða bæði tímasetningu og fjármögnun verkefnisins um uppbyggingu þessara svæða. Í ljósi þess hvernig hefur farið með málefni Sorpu á undanförnum mánuðum sem og Strætó á seinasta kjörtímabili, leggja fulltrúar Samfylkingarinnar ríka áherslu á að þar til bærir aðilar rýni áform og áætlanir varðandi uppbygginguna.
Sigrún Sverrisdóttir og Friðþjófur Helgi Karlsson


Guðlaug Kristjánsdóttir kemur að svohljóðandi bókun:

Samningur um framtíðaruppbyggingu Skíðasvæðanna var undirritaður stuttu fyrir kosningar vorið 2018 og fyrst tekinn til formlegrar umfjöllunar í bæjarstjórn í október sama ár, á nýju kjörtímabili.
Undirrituð greiddi þá atkvæði gegn samkomulaginu með svohljóðandi bókun:

,,Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er í fyrsta skipti að ræða þessa stefnumótun skíðasvæðanna með formlegum hætti í dag, en hún kom fyrst til kynningar sl. vor og var undirrituð af þáverandi bæjarstjóra með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar, örstuttu fyrir kosningar. Stuttu fyrir samþykkt stefnunnar var athygli mín vakin á hlut gönguskíðaíþróttarinnar, ef hlut skyldi kalla, í þessum áætlunum. Af rúmlega 6 milljarða króna áætlun eru um 20-30 milljónir ætlaðar til skíðagöngusvæða, eða innan við hálft prósent. Jafnframt var mér bent á að samráð við hagsmunaaðila hefði verið afar lítið, eða einn fundur þar sem verkefnið var kynnt og svo annar til að kynna lokaafurðina. Efnislega hefur verið bent á að fyrirhugaðar framkvæmdir í Kerlingadal gefi tilefni til endurskoðunar, en sá þáttur losar 200 milljónir. Vissulega er rík þörf fyrir endurbætur á skíðasvæðinu almennt, en aðstaða til skíðagöngu hlýtur samt að teljast bjóða upp á mjög mikil tækifæri til úrbóta. Þar er ekki rennandi vatn í skála, ekki salerni og ekki eiginlegur þjónustuskáli, svo eitthvað sé nefnt. Undirrituð reyndi að koma þessum ábendingum áfram á sínum tíma, en ekki verður séð að þær hafi verið teknar til mikillar skoðunar. Stefnumótun og áform um stór fjárútlát rétt fyrir kosningar ætti alltaf að rýna vel, enda oft um talsverðar mannabreytingar að ræða við slík tímamót og ekki víst að allir þekki vel til mála þegar til kastanna kemur. Því kem ég þessu hér með á framfæri í umræðum Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um þetta mál."
Nú, rúmu ári síðar, kemur málið aftur til kasta bæjarstjórnar nokkuð breytt bæði hvað varðar upphæðir og tímasetningar. Í þeim breytingum er ekki að sjá að hlutur gönguskíða hafi aukist, nema síður sé, þó svo ýmislegt annað virðist vera komið í skynsamlegra horf. Svo er að sjá að leitast hafi verið við að styrkja umgjörð vekefnisins og auka aðhald, sem hefur þó í öðrum tilfellum líkt og hjá GaJa verkefninu í Sorpu, brugðist með öllu þó svo það líti vel út á blaði.
Í ljósi ofangreinds mun undirrituð taka afstöðu við afgreiðslu málsins hér í dag með sama hætti og áður, þ.e. greiða atkvæði gegn því.

Sigurður Þ. Ragnarsson kemur að svohljóðandi bókun:

Bókun frá bæjarfulltrúa Miðflokksins, Sigurði Þ. Ragnarssyni.
Umræddur samningur um uppbyggingu skíðasvæðanna var samþykktur rétt fyrir síðustu kosningar með miklu hraði. Umræða og samráð hefur lítið sem ekkert verið á núverandi kjörtímabili þó hér sé verið að tala um verkefni uppá ríflega 6 milljarða. Að þessu sögðu greiðir fulltrúi Miðflokksins gegn málinu að svo stöddu.