Hafnarfjarðarkaupstaður, geymslur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1845
1. apríl, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
8.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 26.mars sl. Lagðir fram leigusamningar um geymslurými Byggðasafns og Hafnarborgar að Hringhellu 14. Sigurjón Ólafsson sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs mætir til fundarins.
Fundarhlé gert kl. 11:20 Fundi fram haldið kl. 11:25
Bæjarráð samþykkir framlagða leigusamninga um rými í Hringhellu 14 annars vegar vegna Byggðasafns og hins vegar vegna Hafnarborgar og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. Bæjarráð samþykkir viðauka við leigusamning frá 16. júní 2006.
Svar

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.