Kaplakriki, framkvæmdir
Kaplakriki
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3569
11. mars, 2021
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá Fimleikafélagi Hafnarfjarðar dags. 9. mars sl. þar sem óskað er eftir veðheimild. Viðar Halldórsson formaður aðalstjórnar FH mætir til fundarins.
Svar

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi erindi með vísan til 6. gr. lóðarleigusamnings um Kaplakrika frá 13. júlí 2009. Beiðnin er m.a. tilkomin vegna eignaskipta þar sem verið er að færa eignir sem áður voru í eigu félagsins veðbandslausar yfir til bæjarfélagsins.