Samþykktir um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1860
16. desember, 2020
Annað
Fyrirspurn
2.liður úr fundargerð forsetanefndar frá 14.desember sl. Farið yfir endurskoðun samþykktar og viðauka. Til afgreiðslu.
Drögum að breyttri Samþykkt um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar ásamt viðauka vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Svar

Við fundarstjórn tekur Adda María Jóhannsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar.

Til máls tekur Kristinn Andersen.

Þá tekur Kristinn við fundarstjórn á ný.

Forseti ber næst upp tillögu um að fyrirliggjandi samþykkt ásamt viðauka verði vísað til síðari umræðu og er tillagan samþykkt samhljóða.