Hverfisgata 49, lóðarstækkun, lóðarleigusamningur, endurnýjun
Hverfisgata 49
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1849
10. júní, 2020
Annað
Fyrirspurn
5.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 2.júní sl. Á fundi bæjarráðs þann 12.03.2020 samþykkti bæjarráð fyrir sitt leyti lóðarstækkun Hverfisgötu 49 og benti á að vinna þyrfti tillögu að breyttu deiliskipulagi er gerði grein fyrir umræddri lóðarstækkun. Lögð fram tillaga að breyttu deiliskipulagi dags. maí 2020.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillaga að breyttu deiliskipulagi fari til auglýsingar og að málsmeðferð verði í samræmi við 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Erindinu er jafnframt vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
Svar

Guðlaug Kristjánsdóttir tekur til máls.
Til andsvars kemur Ólafur Ingi Tómasson.

Adda María Jóhannsdóttir tók til máls.

Samþykkt samhljóða.