Hamranes I, nýbyggingarsvæði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1847
13. maí, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 5.maí sl. Uppfærð greinargerð aðalskipulagsbreytingar þar sem tekið hefur verið tillit til athugasemda Skipulagsstofnunar ásamt tillögu að aðalskipulagsbreytingu lögð fram.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breyttri greinargerð aðalskipulags Hamraness í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Svar

Til máls tekur Ingi Tómasson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.