Hamranes I, nýbyggingarsvæði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1864
17. febrúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 9.febrúar sl. Lögð fram og kynnt reitaskipting m.t.t. áframhaldandi skipulagsvinnu. Jafnframt eru lögð fram uppfærð gögn varðandi landnotkunarbreytingu á nýbyggingarsvæði Hamraness.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða reitaskiptingu og uppfærðan aðalskipulagsuppdrátt í samræmi við það og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Fulltrúi Samfylkingarinnar fagnar því að vinna við úthlutun lóða í næstu reitum Hamranes er að hefjast. Í ljósi þess að staða ungs fólk á húsnæðismarkaði hefur versnað til muna á síðustu árum þá leggur fulltrúi Samfylkingarinnar til að við úthlutun að reitum í Hamranesi verði horft til hagkvæmra íbúða fyrir ungt fólk. Mikilvægt er að í nýju hverfi Hamranes verði fjölbreytt þjónusta og atvinna í vaxandi hverfi og staðið verði við fyrri áætlanir um að þar verði heilsugæsla og hjúkrunarheimili. Á uppdrættinum sést að ákveðnum reitum er ráðstafað til uppbyggingu skóla og leikskóla en engin lóð sérmerkt hjúkrunarheimili. Úr þessu þarf að bæta hið fyrsta og að lóð verði ráðstafað fyrir hjúkrunarheimili og heilsugæslu í hverfinu.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar bóka eftirfarandi:
Það er ánægjulegt að sjá þá þróun sem er að eiga sér stað í Skarðshlíð og Hamranesi. Síðustu lóðunum í Skarðshlíð verður úthlutað á næsta fundi bæjarráðs og góður gangur er í gangi mála í Hamranesi. Fulltrúar meirihlutans taka undir bókun fulltrúa Samfylkingarinnar um mikilvægi þess að þar verði hagkvæmar íbúðir fyrir ungt fólk og gert verði sérstaklega ráð fyrir uppbygginu hjúkrunarheimilis á svæðinu. Fulltrúar meirihlutans benda þó á mikilvægi þess fyrir samfélagið í heild að í Hamranesi verði fjölbreyttar íbúðir fyrir alla hópa samfélagsins; unga sem aldna.
Svar

Til máls tekur Ingi Tómasson. Einnig tekur Stefán Már Gunnlaugsson til máls og kemur Ingi til andsvars.

Þá tekur Adda María Jóhannsdóttir til máls. Til andsvars kemur Ingi Tómasson og svarar Adda María andsvari.

Þá tekur Stefán Már Gunnlaugsson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.

Stefán Már kemur að svohljóðandi bókun:

Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar hafa lagt áherslu á að í Hamranesi verði staðið við fyrri áætlanir um að þar yrði byggt hjúkrunarheimili. Það er því fagnaðarefni að á síðasta fundi bæjarráðs var samþykkt að taka frá lóð fyrir hjúkrunarheimili og tengda starfsemi. Þetta er í samræmi við rammaskipulag, aðalskipulagi og þróun síðustu missera í rafrænum samskiptum að í Hamranesi verði auk íbúðarbyggðar með fjölbreyttu búsetuformi ýmiss þjónusta, atvinna, verslun, menningarstofnanir, stjórnsýsla ofl.
Það er einnig fagnaðarefni að framkvæmdir við íbúðaruppbyggingu séu hafnar í Hamranesinu. Hafnarfjarðarbær hefur verið í stöðugum vexti í 81 ár eða þar til á síðasta ári þegar íbúum í Hafnarfirði fækkaði um 1% í fyrsta skipti síðan 1939. Í aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 kemur fram að árleg fjölgun íbúa í Hafnarfirði frá 2001-2013 hafi verið 2,5% og gert ráð fyrir áframhaldandi 1.2.-2.5% fjölgun á hverju ári. Þær forsendur hafa nú breyst. Samkvæmt svörum við fyrirspurn fulltrúa Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks á síðasta fundi skipulags- og byggingaráðs kemur fram að ekki er hægt að búast við að íbúum fjölgi á þessu eða næsta ári, því aðeins er gert ráð fyrir að íbúðum fjölgi um 110 (2021) og 85 (2022). Þetta er alvarleg staða.
Nauðsynlegt er að hraða vinnu við skipulag Hamranes og úthlutun næstu reita svo hægt verði að úthluta lóðum hið fyrsta. Jafnframt er lagt til hafin verði vinna við að skoða fleiri kosti varðandi byggingarland í Hafnarfirði og þeirri vinnu verði hraðað eins og aðstæður frekast leyfa.

Stefán Már Gunnlaugsson
Adda María Jóhannsdóttir

Fundarhlé kl. 14:27.

Fundi framhaldið kl. 14:34.

Ágúst Bjarni Garðarsson kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúar Framsóknar og Sjálfstæðisflokks bóka eftirfarandi:

Mikil eftirspurn hefur verið eftir lóðum í Skarðshlíð undanfarið og var síðustu lóðunum í því hverfi úthlutað á fundi bæjarráðs í síðustu viku. Hverfið sem er í jaðri upplands Hafnarfjarðar í skjólsælum hlíðum á móti suðri verður að okkar mati eitt eftirsóttasta hverfi höfuðborgarsvæðisins innan fárra ára. Nýbyggingarsvæði í Hafnarfirði eru samkvæmt svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins og aðalskipulagi Hafnarfjarðar; Hamranes, Ásland 4 og 5 og Vatnshlíð. Samþykkt hefur verið að hefja vinnu við deiliskipulag Áslands 4 og 5, þar sem gert er ráð fyrir góðri blöndu húsnæðis.

Líkt og við flest vitum og þekkjum, en virðist því miður ítrekað koma fulltrúum Samfylkingarinnar sérstaklega á óvart, var forsenda uppbyggingar á þessum svæðum niðurrif Hamraneslínu. Samkomulag við Landsnet gerði ráð fyrir að niðurrifi línanna yrði lokið árið 2018, en ekkert varð að þeim áformum vegna kæru umhverfissamtaka og niðurfellingu Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindarmála á framkvæmdaleyfi á Lyklafellslínu. Með samkomulagi bæjarins við Landsnet var Hamraneslína flutt til bráðabirgða frá jaðri Skarðshlíðar og nýbyggingarsvæðinu í Hamranesi. Hófust þeir flutningar um mitt ár 2019 og nú standa yfir framkvæmdir við gatnagerð í Hamranesi þar sem íbúðauppbygging er nú að hefjast ? uppbygging mörg hundruð íbúða.

Auk þess má nefna þá uppbyggingu sem nú er að hefjast við Hraun vestur ? Gjótur, sem er hluti af mjög vænlegu byggingarlandi. Þar er fyrirhuguð byggð, 490 íbúðir auk verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Aðal- og deiliskipulag liggur fyrir og gert er ráð fyrir því að framkvæmdir hefjist nú á vormánuðum. Þeirri skynsamlegu og kröftugu uppbygginu hefur Samfylkingin ítrekað lagst gegn; lagst gegn uppbyggingu á besta stað við samgönguás Borgarlínunnar. Við segjum: komið með og gerum þetta saman.

Hægt er að fullyrða að bæjarbúar munu sjá afrakstur mikillar vinnu þessa kjörtímabils á næstu mánuðum líkt og farið hefur verið yfir hér að ofan. Íbúum mun fjölga verulega og falleg hverfi byggjast upp.

Einnig kemur Jón Ingi Hákonarsson að svohljóðandi bókun:

Fulltrúi Viðreisnar tekur undir bókun Samfylkingar og bendir á að skortur á lóðaframboði undanfarin ár er að mestu heimatilbúnn vandi í boði Sjálfstæðisflokksins.

Fundarhlé kl. 14:38.

Fundi framhaldið kl. 14:46.

Stefán Már þá næst að svohljóðandi bókun fyrir hönd fulltrúa Samfylkingar og Viðreisnar:

Samfylking og Viðreisn bóka
Málflutningur Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks undanfarin ár hefur verið að framtíðin sé björt í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis, en lítið bólar á efndum. Tölurnar tala sínu máli og þær segja einfaldlega að Hafnarfjörður er neðstur á listanum þegar kemur að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Hvorki Samfylking né Viðreisn hafa lagst gegn uppbyggingu á Hraun vestur - Gjótur. Samfylkingin og Viðreisn hafa aftur og aftur lagt til að staðið sé við skipulag, sem unnið hefur verið í samráði við fólkið í bænum, en fulltrúar meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks gjarnan snúist gegn á síðustu stundu og viljað umturna góðu skipulagi sem sátt var um, m.a. til að vega upp stöðnun sem ríkt hefur sl. sjö ár. Það er dæmigert fyrir hringlandann og kyrrstöðuna í skipulagsmálum bæjarins. Nú er ráð að láta verkin tala.

Stefán Már Gunnlaugsson
Adda María Jóhannsdóttir
Jón Ingi Hákonarson