Hamranes I, nýbyggingarsvæði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1846
29. apríl, 2020
Annað
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 22.apríl sl. Úthlutun lóðarvilyrða, Hamranes reitir 12, 13 og 14.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að reit 12 sé úthlutað til Lifandi Samfélags - 70 einingar/íbúðir, reit 13 sé úthlutað til Arkþings - Þingvangs - 70 einingar/íbúðir og reit 14 sé úthlutað til Skipan - 100 einingar/íbúðir.
Svar

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu um úthlutun reita 12, 13 og 14 í Hamranesi.