Barnvænt samfélag, vottun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarráð nr. 3461
6. apríl, 2017
Annað
Fyrirspurn
Bergsteinn Jónsson framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi kemur á fundinn og kynnir barnvæn sveitarfélög.
Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Fanney Dóróthe Halldórsdóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundaþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.
Svar

Á fundi bæjarstjórnar 7. 12. 2016 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar eftirfarandi tillögu:
,,Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að óska eftir samstarfi við Unicef og Akureyrabæ við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í allt sitt starf, reglur, samþykktir og stefnur til að uppfylla þær kröfur til að gerast Barnvænt samfélag og ná því markmiði að fá vottun vegna þessa og felur bæjarráði úrvinnslu þess og stofnun stýrihóps um verkefnið.“


Bæjarráð þakkar framkvæmdastjóra UNICEF kynninguna og felur bæjarstjóra undirbúning stýrihóps vegna verkefnisins fyrir haustið.