Þjóðlenda innan staðarmarka Hafnarfjarðar
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1845
1. apríl, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
1.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 24.mars sl. Á fundi Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 21. maí sl. var samþykkt að vinna að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna marka þjóðlenda innan staðarmarka Hafnarfjarðarkaupstaðar í samræmi við 36.grein skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. úrskurð Óbyggðanefndar. Lýsing var kynnt tímabilið 26.6.2019-2.8.2019. Tillaga þar sem tekið hafði verið tillit til ábendinga við lýsingu var til kynningar á opnu húsi þann 16.12.2019 í samræmi við ákvæði 2.mgr. 30.gr. skipulagslaga. Skipulags- og byggingarráð samþykkti að auglýsa tillöguna í samræmi við 1.mgr. 36.gr. skipulagslaga og vísaði til bæjarstjórnar. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 8.1.2020 breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna breyttra marka þjóðlenda innan staðarmarka Hafnarfjarðarkaupstaðar dags. 12.12.2019 og að hún skyldi auglýst í samræmi við 1.mgr. 36.gr. laga 123/2010. Tillagan var auglýst 7.2.-20.3.2020. Umsagnir hagsmunaaðila lagðar fram. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir aðalskipulagsbreytinguna og að málsmeðferð skuli lokið í samræmi við 32.gr. skipulagslaga. Erindinu er vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
Svar

Til máls tekur Ingi Tómasson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.