Skarðshlíð deiliskipulag 2. áfangi
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 617
7. mars, 2017
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram á ný tillaga Yddu arkitekta ehf. að breyttu deiliskipulagi Skarðshlíðar ásamt greinagerð/skilmálum. dags. 13.12.2016. Deiliskipulagsbreytingin var samþykkt af skipulags- og byggingarráði þann 13.12.2016 og bæjarstjórn Hafnarfjarðar þann 21.12.2016. Deiliskipulagið var auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 28.12.2016-13.02.2017. Athugasemd barst frá Gísla Grétari Gunnarssyni dags. 13.02.2017. Einnig gerir framkvæmda- og rekstrardeild umhvefis- og skipulagsþjónustu athugasemdir dags. 9.2.2017..
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að taka saman svör við athugasemdunum og leggja fram á næsta fundi ráðsins.