Herjólfsbraut, tenging við Álftanesveg
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1772
12. október, 2016
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga að bókun:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á lokun Herjólfsbrautar við Garðahraunsveg (gamla Álftarnesveg) eins og fram kemur í auglýsingu um tillögu að breyttu deiliskipulagi Garðahrauns frá 7. sept s.l.. Fyrirliggjandi tillaga sem gerir ráð fyrir talsverðum breytingum á m.a. umferðartengingum er lögð fram á nokkurs samráðs né úttektar á umferðarmálum svæðisins. Nái tillagan fram að ganga mun umferð aukast stórlega í gegnum íbúðahverfi Norðurbæjar og hafa veruleg áhrif á heimilis- og starfsmenn Hrafnistu auk þess sem viðbragðstími sjúkra- og slökkviliðs lengist verulega inn á það svæði og nyrðri hluta Hafnarfjarðar. Í fyrirliggjandi tillögu eru t.d. gerðar breytingar á umferðarmannvirkjum sem eiga sér ekki stoð í gildandi Aðalskipulagi Garðabæjar. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar skorar á bæjaryfirvöld í Garðabæ að falla frá fyrirhuguðum breytingum.
Svar

Lögð fram eftirfarandi bókun:

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á lokun Herjólfsbrautar við Garðahraunsveg (gamla Álftarnesveg) eins og fram kemur í auglýsingu um tillögu að breyttu deiliskipulagi Garðahrauns frá 7. sept s.l..
Fyrirliggjandi tillaga sem gerir ráð fyrir talsverðum breytingum á m.a. umferðartengingum er lögð fram án nokkurs samráðs né úttektar á umferðarmálum svæðisins.
Nái tillagan fram að ganga mun umferð aukast stórlega í gegnum íbúðahverfi Norðurbæjar og hafa veruleg áhrif á heimilis- og starfsmenn Hrafnistu auk þess sem viðbragðstími sjúkra- og slökkviliðs lengist verulega inn á það svæði og nyrðri hluta Hafnarfjarðar.
Í fyrirliggjandi tillögu eru t.d. gerðar breytingar á umferðarmannvirkjum sem eiga sér ekki stoð í gildandi Aðalskipulagi Garðabæjar.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar skorar á bæjaryfirvöld í Garðabæ að falla frá fyrirhuguðum breytingum.

Til máls tekur bæjarfulltrúi Ólafur Ingi Tómasson.

Framlögð bókun er samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.