Sólvangur, hjúkrunarheimili á Sólvangssvæði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarráð nr. 3564
17. desember, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lagður fram tölvupóstur frá heilbrigðisráðuneytinu dags. 11.desember sl. um uppbyggingu á "gamla" Sólvangi.
Svar

Bæjarráð fagnar þeirri ákvörðun heilbrigðisráðuneytisins að leggja 120 m.kr. til stofnkostnaðar umrædds þróunarverkefnis á gamla Sólvangi. Nýsamþykkt fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2021 gerir ráð fyrir 250 m.kr. í endurbætur á húsnæðinu og því ljóst að framkvæmdir munu hefjast strax á næsta ári.