Norðurgarður og Norðurbakki - endurbygging
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 727
9. febrúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarráð samþykkti 1.12.2020 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Norðurbakka að nýju og að málsmeðferð yrði í samræmi við 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga. Erindinu var jafnframt vísað til staðfestingar í Hafnarstjórn og bæjarstjórn. Hafnarstjórn samþykkti erindið á fundi sínum þann 2.12.2020 og bæjarstjórn samþykkti samhljóða afgreiðslu hafnarstjórnar og skipulags- og byggingarráðs þann 9.12.2020. Tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Norðurbakka var auglýst 18.12.2020-28.1.2021. Athugasemd barst. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7.2.2021 lögð fram.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir breytingu á deiliskipulagi og vísar til staðfestingar í hafnarstjórn og bæjarstjórn.