Skipalón 10, aflétting kvaðar
Skipalón 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 289
13. desember, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Lagt fram bréf FM-húsa ehf dags. 03.11.11 þar sem óskað er eftir að Skipulags- og byggingarráð aflétti þeirri kvöð af húsinu Skipalón 10 að íbúar skuli vera 50 ára og eldri. Lögð fram umsögn Fræðslusviðs og Framkvæmdasviðs.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir, á grundvelli umsagnar bæði fræðslustjóra Hafnarfjarðar og forstöðumanns Fasteignafélags Hafnarfjarðar, þar sem ekki eru gerðar athugasemdir vegna mögulegra áhrifa á nærliggjandi grunnskóla, að aflétta kvöð á Skipalóni 10.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að undirbúa breytingar á deiliskipulagi, sem verði auglýst í samræmi við 41. gr. laga nr. 123/2010.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 203296 → skrá.is
Hnitnúmer: 10083548