Lækjargata 10 , deiliskipulagsbreyting.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 245
16. febrúar, 2010
Annað
Fyrirspurn
Hafliði Richard Jónsson sækir um leyfi til að breyta deiliskipulagi á Lækjargötu 10. Samkvæmt teikningum Hilmars Þórs Björnssonar dags. 03.12.09. Skipulags- og byggingarráð samþykkti 15.12.2009 að deiliskipulagsbreytingin verði auglýst skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. Deiliskipulagsbreytingin var auglýst 25.12.2009 og lauk athugasemdafresti 09.02.2010. Athugasemd barst. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 10.02.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að gera tillögu að svari við innkominni athugasemd.