Austurgata 22, Fríkirkjan í Hafnarfirði, fyrirspurn
Austurgata 22
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 259
19. október, 2010
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju fyrirspurn Máts ehf frá 05.11.2009 þar sem óskað er eftir að byggja nýtt hús á Austurgötu 22, samkvæmt teikningum Kára Eiríkssonar. Áður lagðar fram teikningar frá 30. nóvember 2009, ljósmyndir og tölvumyndir frá fyrirspyrjanda. Áður lagt fram bréf Birnu Guðmundsdóttur f.h. Fríkirkjunnar dags. 20.01.2010. Lögð fram kynning af nýjum hugmyndum, sem sýnd var á síðasta fundi.Tillögurnar ganga m.a. út á nýtt safnaðarheimili að Austurgötu 22, sem verði sambyggt við hótelbyggingu á sömu lóð og við núverandi safnaðarheimili að Linnetstíg 6. Einnig er gert ráð fyrir að færa húsið að Linnetstíg 6 í fyrra útlit með bárujárnsklæðningu. Húsið verði hluti af fyrirhuguðu nýju hóteli á báðum lóðunum. Aðkoma að hótelinu verði frá Linnetstíg. Aðkoma að nýju safnaðarheimili verður frá Austurgötu. Kári Eiríksson arkitekt hússins mætti á fundinn og kynnti.
Svar

Skipulags- og byggingarráð þakkar fyrir kynninguna.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120018 → skrá.is
Hnitnúmer: 10029121