Hvaleyrarbraut 35, ólögleg búseta.
Hvaleyrarbraut 35
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1625
8. desember, 2009
Annað
Fyrirspurn
18. liður úr fundargerð SBH frá 1.des. sl. Borist hafa upplýsingar um ólöglega búsetu í húsinu. Einnig að húsið sé enn skráð á byggingarstigi 1 og að lögboðnar úttektir hafi ekki farið fram, þar á meðal fokheldisúttekt. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 20.05.2009 eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Svar barst ekki. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði 10.06.2009 málinu til skipulags- og byggingarráðs. Skipulags- og byggingarráð gerði 23.06.2009 eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Bærust þær ekki innan þess tíma mundi skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagsektum skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 þar til bætt verður úr. Skipulags- og byggingarráð féllst á að veita frest til septembermánaðar. Frekari skýringar bárust ekki að þeim tíma liðnum. Greint frá fundi skipulags- og byggingarsviðs með Ívari Erlendssyni fulltrúa eigenda hússins, sem neitaði því að þar væri búseta, en varnaði skoðunarmanni inngöngu til að sannreyna það. Skipulags- og byggingarráð gerði 20.10.2009 kröfu um að byggingarstjóri verði settur á húsið innan tveggja vikna og boði þá þegar til stöðuúttektar. Einnig gerði skipulags- og byggingarráð þá kröfu að eftirlitsmanni skipulags- og byggingarsviðs verði tafarlaust veittur aðgangur til að sannreyna hvort búseta sé í húsinu. Yrði ekki brugðist við hvoru tveggja innan tveggja vikna mundi skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagsektum í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekki hefur verið brugðist við erindinu.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að lagðar verði dagsektir á húseiganda kr. 50.000 á dag frá og með 1. janúar 2010 verði ekki brugðist við því erindi að setja byggingarstjóra á verkið, leggja inn reyndarteikningar að húsinu, sækja um lögboðnar úttektir og veita skoðunarmanni skipulags- og byggingarfulltrúa aðgang að húsinu til að sannreyna hvort þar sé búseta."
Svar

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 121121 → skrá.is
Hnitnúmer: 10033450