Selvogsgata 1, byggingarleyfi
Selvogsgata 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 241
15. desember, 2009
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf Bjögvins Þórðarsonar Lex lögmannsstofu f.h. íbúa að Brekkugötu 26 dags. 24.11.2009, þar sem gerð er athugasemd við framkvæmdir við Selvogsgötu 1, þar sem steypt er fyrir glugga í kjallaraíbúð Brekkugötu 1. Gerð er athugasemd við þau gögn sem fylgdu grenndarkynningunni. Skipulags- og byggingarráð samþykkti 01.12.2009 að leita álits Skipulagsstofnunar varðandi grenndarkynninguna og gerði eiganda Selvogsgötu 1 skylt að stöðva framkvæmdir að hluta þar til það álit lægi fyrir. Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 8.12.2009 þar sem fram kemur að ekki hafi verið staðið rétt að samþykkt byggingarleyfisins.
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda Selvogsgötu 1 skylt að stöðva áfram tímabundið framkvæmdir við vegginn að Brekkugötu 26 vegna álits Skipulagsstofnunar og felur skipulags- og byggingarsviði að ræða við aðila og kynna niðurstöðuna.      

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122174 → skrá.is
Hnitnúmer: 10037689