Ásvellir, Haukasvæði, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 1868
28. apríl, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
5. liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 20. apríl sl. Lögð fram tillaga að breyttu deiliskipulagi Haukasvæðisins. Breytingin gerir ráð fyrir færslu og snúningi á æfingarvelli, breytingu á gönguleiðum, girðingum. Gerð er grein fyrir staðsetningu fornleifa.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Haukasvæðis og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn. Málsmeðferð fari skv. 43. grein skipulagslaga.
Svar

Til máls tekur Ingi Tómasson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.

Adda María Jóhannsdóttir gerir grein fyrir atkvæði sínu.