Ásvellir, Haukasvæði, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 1893
31. ágúst, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
12.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 25.ágúst sl. Lagt fram svar við umsögnum vegna umhverfismatsskýrslu um uppbyggingu á íþróttasvæði Hauka. Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagt svar vegna þeirra umsagna og athugasemda sem bárust á auglýsingatíma umhverfismatsskýrslu um uppbyggingu á íþróttasvæði Hauka og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Svar

Til máls tekur Guðmundur Árni Stefánsson.

Valdimar Víðisson tekur við fundarstjórn.

Kristinn Andersen tekur til máls. Einnig tekur Guðmundur Árni til máls öðru sinni.

Kristinn Andersen tekur við fundarstjórn að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.