Ásvellir, Haukasvæði, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 224
7. apríl, 2009
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga Péturs Jónssonar landslagsarkitekts dags. 15.02.2009 að breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis Hauka að Ásvöllum ásamt skýringaruppdrætti. Borist hefur nýr uppdráttur dags. 02.04.2009.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að  deiliskipulagstillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að senda tillögu að deiliskipulagi Ásvalla, Haukasvæði dags. 02.04.2009 í auglýsingu skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."