Ásvellir, Haukasvæði, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 593
22. mars, 2016
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga Péturs Jónssonar landslagsarkitekts dags. 3. mars 2016 að breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis Hauka að Ásvöllum.
Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 23. febrúar sl. var fallist á fyrirliggjandi tillögu með athugasemdu jafnframt því að óskað var eftir að sýnd sé sneiðing í gegnum allt svæðið áður en tillagan verður tekin til endanlegrar afgreiðslu. Lögð fram umbeðin sneiðing dags. 3. mars 2016.
Svar

Skipulags- og byggingarráð óskar eftir þrívíddarásýnd af svæðinu og gerð sé grein fyrir tengslum við nánasta umhverfi. Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt mætti á fundinn vegna þessa máls.