Fundargerðir 2009, til kynningar í bæjarstjórn
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1621
13. október, 2009
Annað
‹ 3
4
Fyrirspurn
Fundargerð skipulags-og byggingaráðs frá 6. okt. sl. a. Fundargerð umhverfisnefndar/Staðardagskrá 21 frá 30.sept. sl. Fundargerð bæjarráðs frá 8. okt. sl. a. Fundargerð hafnarstjórnar frá hafnarstjórnar frá 23. sept. sl. b. Fundargerðir stjórnar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 4. júní, 9. og 30. sept. sl. c. Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 1. okt. sl. Fundargerð framkvæmdaráðs frá 5. okt. sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 5. okt. sl. Fundargerð fjölskylduráðs frá 7. okt. sl. a. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 30. sept. sl.
Svar

Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri, kvaddi sér hljóðs undir 4. lið fundargerðar bæjarráðs frá 4. október sl., Árshlutauppgjör 2009. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Lúðvík Geirsson svaraði andsvari. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Haraldur Þór Ólason kom að andsvari við ræðu bæjarstjóra. Lúðvík Geirsson svaraði andsvari. Haraldur Þór Ólason kom að andsvari öðru sinni.   Haraldur Þór Ólason tók til máls undir 4. og 5. lið, Lánsfjárheimildir bæjarsjóðs 2009, í fundargerð bæjarráðs frá 4. október sl. og 6. lið, Íþróttahús Kaplakrika, framkvæmdir, í fundargerð framkvæmdaráðs frá 5. október sl. Gunnar Svavarsson kom að andsvari.   Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls undir 6. lið í fundargerð framkvæmdaráðs frá 5. október sl., 4., 5. og 2. lið, Lögreglustjórinn á höfuðuborgarsvæðinu, fundur með fulltrúum bæjarstjórna, í fundargerð bæjarráðs frá 4. október sl. Lúðvík Geirsson kom að andsvari. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari. Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að andsvari. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari. Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur. Haraldur Þór Ólason kom að andsvari við fyrri ræðu Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari. Haraldur Þór Ólason kom að andsvari öðru sinni. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Haraldur Þór Ólason gerði stutta athugasemd. Gunnar Svavarsson kom að andsvari við fyrri ræðu Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur.   Lúðvík Geirsson tók til máls undir 6. lið í fundargerð framkvæmdaráðs frá 5. október sl. Haraldur Þór Ólason kom að andsvari.   Gunnar Svavarsson tók til máls undir 6. lið í fundargerð framkvæmdaráðs frá 5. október sl. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Gunnar Svavarsson svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Gunnar Svavarsson svaraði andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd. Gunnar Svavarsson kom að stuttri athugasemd. Haraldur Þór Ólason kom að andsvari við ræðu Gunnars Svavarssonar. Gunnar Svavarsson svaraði andsvari.   Margrét Gauja Magnúsdóttir tók til máls undir 6. lið í fundargerð framkvæmdaráðs frá 5. október sl. Haraldur Þór Ólason kom að andsvari. Margrét Gauja Magnúsdóttir svaraði andsvari. Haraldur Þór Ólason kom að andsvari öðru sinni.   Lúðvík Geirsson tók til máls undir 6. lið í fundargerð framkvæmdaráðs frá 5. október sl.   Almar Grímsson tók til máls undir 4. lið í fundargerð bæjarráðs frá 4. október sl. Lúðvík Geirsson kom að andsvari. Almar Grímsson svaraði andsvari.   Haraldur Þór Ólason tók til máls undir 4. lið í fundargerð bæjarráðs frá 4. október sl. Lúðvík Geirsson kom að andsvari. Gunnar Svavarsson kom að andsvari við ræðu Haraldar Þórs Ólasonar.   Gunnar Svavarsson tók til máls undir 3. lið, HS Orka hf., sala hlutabréfa, í fundargerð bæjarráðs frá 4. október sl.   Haraldur Þór Ólason, f.h. fulltrúa Sjálfstæðisflokks, kom að eftirfarandi bókun undir 4. lið í fundargerð bæjarráðs, Árshlutauppgjör 2009:   "Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks lýsa yfir þungum áhyggjum yfir slæmri fjárhagslegri stöðu bæjarfélagsins sem kemur fram í 6. mánaða uppgjöri.   Skuldasöfnun bæjarsjóðs heldur áfram og aukning langtímaskulda og skammtímaskulda við lánastofnanir eru mikið áhyggjuefni. Samkvæmt 6 mánaða uppgjöri 2009 voru langtímaskuldir um miðbik árs þegar orðnar rúmir 25,3 milljarðar króna og hafa aukist um 9 milljarða króna frá miðju síðasta ári. Heildarskuldir og skuldbindingar stefna nú hraðbyri í 40 milljarða króna.   Rekstrarniðurstaða fyrstu 6 mánuði 2009 er neikvæð sem nemur 137 milljónum króna án fjármagnsliða. Eigið fé A og B hluta er neikvætt um 831 milljón króna og veltufé frá rekstri er einnig neikvætt um 150 milljónir króna en það er sá mælikvarði á afkomu bæjarfélagsins sem sýnir hver geta bæjarins er til að framkvæma og greiða afborganir og vexti af lánum.   Afborganir af langtímaskuldum eru áætlaðar 1,1 milljarður króna á þessu ári og 5,4 milljarðar 2010 og því er ljóst að bæjarfélagið getur með engu móti staðið straum af skuldbindingum sínum nema með nýjum lántökum og að til komi stóraukin hagræðing í rekstri. Tekjuaukning er ekki raunhæf nú vegna fyrsjáanlegs samdráttar útsvarstekna. Við afgreiðslu endurskoðunar fjárhagsáætlunar 30. júní s.l. bentu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna á að tillaga að endurskoðaðri fjárhagsáætlun var lítt útfærð og að grípa hefði þurft til enn frekari aðhaldsaðgerða strax við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 7. janúar 2009 til þess að ná endum saman. Fyrirliggjandi sex mánaða uppgjör staðfestir enn frekar að Samfylkingin hefur ekki nein tök á rekstri bæjarins. Mál er að linni. Upplýst er að eftirlitsnefnd sveitarfélaga hefur kallað eftir skýringum Hafnarfjarðarbæjar. Þetta er sönnun þess að þessi opinbera nefnd telur að fjármál Hafnarfjarðar séu komin í óefni. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hvetja því til að endurreisn Hafnarfjarðar hefjist nú þegar. Sjálfstæðisflokkurinn er reiðubúinn að leggja sitt af mörkum með virkri þátttöku á jafnréttisgrundvelli í bæjarstjórn Hafnarfjarðar."   Haraldur Þór Ólason (sign) Rósa Guðbjartsdóttir (sign) Almar Grímsson (sign)  
Haraldur Þór Ólason, f.h. fulltrúa Sjálfstæðisflokks, kom að eftirfarandi bókun undir 5. lið í fundargerð bæjarráðs, Lánsfjárheimildir 2009:   "Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins benda á að með nýjum lánsfjárheimildum sem meirihluti Samfylkingar hefur samþykkt í bæjarráði, er brotið blað í sögu Hafnarfjarðar með því að veðsetja hús hjúkrunarheimilisins Sólvangs og íþróttahúsið við Strandgötu auk húsnæðis fræðsluskrifstofu. Með þessu er ljóst að lánshæfi Hafnarfjarðar er lágt metið enda höfnuðu lánveitendur veðum í óseldum í lóðum og löndum sem Samfylkingin  þó hampar sem duldum eignum sem hún telur nema hátt í tíu milljarða króna."  
Haraldur Þór Ólason (sign)
Rósa Guðbjartsson (sign) Almar Grímsson (sign)   Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna, lagði fram svohljóðandi bókun undir 4. lið í fundargerð bæjarráðs, Árshlutauppgjör 2009:   "Bæjarfulltrúi Vinstri grænna tekur undir áhyggjur vegna árshlutauppgjörs Hafnarfjarðarbæjar fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Vinstri græn tóku þátt í vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2009 með meirihluta bæjarstjórnar, af heilum hug, ekki síst vegna þess efnahagsástands sem þá ríkti. Það efnahagsástand sem íslenskt samfélag stóð frammi fyrir fyrir ári síðan er enn til staðar og sýnir árshlutauppgjörið ennfremur að sömu aðstæður séu í rekstri bæjarfélagsins og þá voru. Bæjarfulltrúi Vinstri grænna hefur því enn á ný ákveðið að taka þátt í vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 og vonar jafnframt að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks sjái sér fært að koma að þeirri vinnu. Einnig kallar bæjarfulltrúi Vinstri grænna eftir því að tryggt verði að bæjarfulltrúar séu upplýstir um allt það sem skiptir máli í þeirri vinnu s.s. eins og ósk eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga um upplýsingar um fjárhagsstöðu sveitarfélagsins sem bæjarfulltrúar þurftu að lesa um í fjölmiðlum." Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir (sign) Lúðvík Geirsson, f.h. fulltrúa Samfylkingar, lagði fram svohljóðandi bókun undir 4. lið í fundargerð bæjarráðs frá 4. október sl., Árshlutauppgjör 2009:"Niðurstöður milliuppgjörs fyrri hluta ársins sýnir að veruleg tekjuskerðing á árinu 2009 er í fullu samræmi við þá áætlun sem lagt var upp með.  Rekstarútgjöld eru á sama tímabili umfram áætlun uppá nær 350 milljónir í A-hluta vegna aukningar á útgjöldum til framfærslumála, grunnskóla og sumarstarfa unglinga á liðnu sumri. Rekstrarniðurstaða B-hluta fyrir fjármagnsliði er hins vegar jákvæðu nær 210 milljónir kr.   I 6 mánaða uppgjörinu er ekki búið að færa inn þá endurskoðun fjárhagsáætlunar sem samþykkt var í lok júni þar sem m.a. var brugðist við auknum útgjöldum til félagsmála og kostnaði vegna sumarvinnu unglinga.  Þá eru samþykktar tillögur bæjarstjórnar um hagræðingu í launa og rekstramálum ekki heldur komnar inn í uppgjörið á þessum tímapunkti, en áhrif af þeim aðgerðum munu sjást í rekstarliðum á síðari hluta ársins.   Fjárfestingar á fyrri hluta ársins eru nær eingöngu vegna áframhaldandi byggingar við íþróttamiðstöðina í Kaplakrika, sem hófst fyrir rúmum tveimur árum. Þá standa Fráveita og Vatnsveita Hafnarfjarðar í nokkrum verkum, auk þess sem á fyrri hluta ársins var lokið við verkefni í leik- og grunnskólum, auk sundlaugarmannvirkja. Viðhaldsverkefni hafa verið nokkur í sumar tengt fasteignum bæjarins, en þó minni en umliðin ár.     Ekki hefur verið leiðrétt í milliuppgjöri vegna endurmats á eignum sveitarfélagsins. Við endurskoðun fjárhagsáætlunar var sú víðtæka vinna sett af stað. Eignamatið hefur ekki verið skoðað í nokkur ár. Duldar eignir liggja einnig hátt í tug milljarða í lóðum og löndum en lóðaskil hafa verið veruleg á umliðnum mánuðum, þó mest á árinu 2008. Er endurgreiðslan með verðbótum nær 7 milljörðum og hefur bæjarráð óskað eftir sérstakri greinargerð vegna eignamyndurnar í gatnagerð og lóðum.   Gengishrun krónunnar og hátt verðbólgustig ráða mestu um aukningu á skuldum og fjármagskostnaði sveitarfélagins en ytri aðstæður á fjármálamörkuðum og óhagstæð þróun gengismála allt frá því á síðari hluta ársins 2008 hefur skapað neikvæðan gengismun í lánasafni bæjarins sem hefur áhrif á útkomu fjármagnsliða. Bæjaryfirvöld fá þar engu um ráðið frekar en aðrir lántakendur, en brugðist hefur verið við þeirri stöðu m.a. með hagræðingu á öllum rekstrarsviðum bæjarfélagsins og jafnframt skuldbreytingu lána og endurfjármögnum.  Eitt mikilvægasta atriðið í þeim efnum er yfirtaka bæjarfélagsins á einkaframkvæmdasamningum vegna Lækjarskóla, Bjarkarhúss og leikskólans Álfabergs.  Sú aðgerð mun hafa í för með sér sparnað uppá hundruð milljón króna á ári, en nær 20 ár stóðu eftir af umræddum einkaframkvæmdasamningum.   Stóryrðum bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um fjárhagsmál bæjarfélagsins er vísað til föðurhúsanna, enda nær að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins kannist við þær afleiðingar sem stefna þeirra, stjórn og forystu í landsmálum á liðnum árum hefur haft í för með sér fyrir fjárhagslega stöðu samfélagsins og afkomu fjölskyldna, fyrirtækja, ríkissjóðs og sveitarfélaganna."   Lúðvík Geirsson (sign) Ellý Erlingsd óttir (sign) Guðmundur Rúnar Árnason (sign) Gunnar Svavarsson (sign) Guðfinna Guðmundsdóttir (sign) Gísli Ósv. Valdimarsson (sign) Margrét Gauja Magnúsdóttir (sign)  Gunnar Svavarsson, f.h. fulltrúa Samfylkingar, lagði fram svohljóðandi bókun undir 5. lið í fundargerð bæjarráðs, Lánsfjárheimildir 2009: "Veðsetningar eru lagðar fram í ljósi skuldbreytinga lífeyrissjóða og lífeyrissjóðir gera kröfu um veðsetningarheimildir í ljósi breytinga á vinnuferli þeirra sem lánadrottnar. Yfirlýsingar sjálfstæðismanna um eignastöðu Hafnarfjarðarbæjar m.a. í lóðum og löndum eru harmaðar og eru ekki í anda þess jákvæða uppbyggingartóns sem flokkurinn í orði en ekki á borði, varðandi fólk og fyrirtæki. Lúðvík Geirsson (sign)Ellý Erlingsdóttir (sign) Guðmundur Rúnar Árnason (sign) Gunnar Svavarsson (sign) Guðfinna Guðmundsdóttir (sign) Gísli Ósv. Valdimarsson (sign) Margrét Gauja Magnúsdóttir (sign)