Fundargerðir 2009, til kynningar í bæjarstjórn
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1618
1. september, 2009
Annað
Fyrirspurn
Fundargerð fræðsluráðs frá 24. ágúst sl. Fundargerð fjölskylduráðs frá 26. ágúst sl. a. Fundargerðir menningar- og ferðamálanefndar frá 15. júlí og 19. ágúst sl. Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 25. ágúst sl. Fundargerð bæjaráðs frá 27. ágúst sl. a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 19. ágúst sl. Fundargerð bæjarráðs frá 31. ágúst sl. Fundargerð framkvæmdaráðs frá 24. ágúst sl.
Svar

Haraldur Þór Ólason kvaddi sér hljóðs vegna 8. liðar fundargerðar skipulags- og byggingarráðs frá 25. ágúst sl. og einnig vegna 1. liðar fundargerðar bæjarráðs frá 27. ágúst sl. og 3. liðar sömu fundargerðar.  Þá tók Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir til máls vegna 3. liðar fundargerðar bæjarráðs frá 27. ágúst sl. Haraldur Þór Ólason kom að andsvari við ræðu Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari, Haraldur Þór Ólason kom að andsvari öðru sinni. Þá Lúðvík Geirsson einnig til máls varðandi 3. lið fundargerðar bæjarráðs frá 27. ágúst sl. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við ræðu Lúðvíks Geirssonar, Lúðvík Geirsson svaraði andsvari, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Lúðvík Geirsson svaraði andsvari öðru sinni. Þá tók Gísli Ó. Valdimarsson til máls varðandi 8. lið fundargerðar skipulags- og byggingarráðs frá 25. ágúst sl. Haraldur Þór Ólason kom að andsvari við ræðu Gísla Ó. Valdimarssonar, Gísli Ó. Valdimarsson svaraði andsvari, Haraldur Þór Ólason kom að andsvari öðru sinni, Gísli Ó. Valdimarsson svaraði andsvari öðru sinni. Þá tók Almar Grímsson til máls varðandi 3. lið fundargerðar bæjarráðs frá 27. ágúst sl.   Gunnar Svavarsson tók til máls vegna 3. liðar fundargerðar framkvæmdaráðs frá 24. ágúst sl. og 8. liðar fundargerðar skipulags- og byggingarráðs frá 25. ágúst sl., einnig vegna 3. liðar fundargerðar bæjarráðs frá 27. ágúst sl.