Fundargerðir 2009, til kynningar í bæjarstjórn
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1607
17. febrúar, 2009
Annað
‹ 7
8
Fyrirspurn
Fundargerð framkvæmdaráðs frá 9.febr. sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 9. febr.sl. Fundargerð fjölskylduráðs frá 11. febr. sl. a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 2.febr. sl. Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 10.febr. sl. a. Fundargerð umhverfisnefndar/Staðardagskrá 21 frá 4.febr. sl. Fundargerð bæjarráðs frá 12. febr. sl. a. Fundargerð lýðræðis- og jafnréttisnendar frá 4.febr. sl. b. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 26. jan. sl. c. Fundargerð stjórnar Stræót bs. frá 30. jan. sl.
Svar

Haraldur Þór Ólason kvaddi sér hljóðs undir 6. lið  fundargerðar skipulags- og byggingarráðs, Uppland Hafnarfjarðar - rammaskipulag og 12. lið fundargerðar bæjarráðs, Tjarnavellir, ósk um lóð fyrir pylsuvagn. Lúðvík Geirsson veitti andsvar og svaraði fyrirspurn. Haraldur Þór Ólason svaraði andsvari og kom að fyrirspurn. Lúðvík veitti andsvar öðru sinni. Haraldur Þór Ólason svaraði andsvari öðru sinni. Lúðvík Geirsson kom að stuttri athugasemd. Guðfinna Guðmundsdóttir kvaddi sér hljóðs undir 6. lið skipulags- og byggingarráðs, Uppland Hafnarfjarðar - rammaskipulag. Haraldur Þór Ólason kom að andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kvaddi sér hljóðs undir 1. lið fundargerðar fræðsluráðs, Skólamáltíðir, kostnaður  og 2. lið sömu fundargerðar, Grunnskólar, úttekt á sjálfsmatsaðferðum og lagði fram spurningar til formanns fræðsluráðs. Við fundarstjórn tók 1. varaforseti, Guðmundur Rúnar Árnason. Ellý Erlingsdóttir veitti andsvar. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari. Gunnar Svavarsson kvaddi sér hljóðs undir 12. lið fundargerðar bæjarráðs, Tjarnavellir, ósk um lóð fyrir pylsuvagn. Haraldur Þór Ólafsson kom að andsvari sem ræðumaður svaraði. Haraldur Þór Ólafsson veitti andsvar öðru sinni. Gunnar Svavarsson svaraði andsvari öðru sinni. Haraldur Þór Ólafsson kom að stuttri athugasemd. Gunnar Svavarsson kom einnig að stuttri athugasemd. Ellý Erlingsdóttir tók aftur við fundarstjórn. Guðfinna Guðmundsdóttir kvaddi sér hljóðs undir 1. lið fundargerðar fræðsluráðs, Skólamáltíðir, kostnaður og lagði fyrirspurn fyrir formann fræðsluráðs. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari sem ræðumaður svaraði. Við fundarstjórn tók 1. varaforseti Guðmundur Rúnar Árnason.   Ellý Erlingsdóttir kom að andsvari við ræðu Guðfinnu Guðmundsdóttur. Ellý Erlingsdóttir tók aftur við fundarstjórn.  Jón Páll Hallgrímsson kvaddi sér hljóðs undir sama lið. Rósa Guðbjartsdóttir kvaddi sér hljóðs undir 3. lið fundargerðar bæjarráðs, Sjálfstæðisflokkurinn, tillaga og fyrirspurn fulltrúa 29.1.2009 og 16. lið sömu fundargerðar, Sjálfstæðisflokkurinn, tillaga bæjarráðsfulltrúa 12. febrúar 2009 og beindi spurningum til Lúðvíks Geirssonar sem hann svaraði. Almar Grímsson kvaddi sér hljóðs undir 16. lið fundargerðar skipulags- og byggingarráðs, Skipulags- og byggingarsvið, gjaldskrár 2009.