Hitaveita Suðurnesja, eignarhlutur Hafnarfjarðarbæjar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3190
17. desember, 2007
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir nýju. Lagt fram minnisblað Askar Capital. Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu málsins og lagði fram eftirfarandi tillögu fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænnna:
Svar

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að nýta ákvæði í viljayfirlýsingu milli Hafnarfjarðarbæjar og Orkuveitu Reykjavíkur frá 2. júlí 2007 varðandi sölu á eignarhlut bæjarfélagsins í Hitaveitu Suðurnesja hf.. Sú ákvörðun er jafnframt tekin á grundvelli þess hluthafasamkomulags sem í gildi er milli eignaraðila í Hitaveitu Suðurnesja hf. og undirritað var þann 11. júlí 2007, þar sem m.a. kemur fram að komi til sölu á hlut Hafnarfjarðarbæjar til Orkuveitu Reykjavíkur munu Reykjanesbær og Geysir Green Energy ehf. ekki nýta forkaupsréttarheimild sína að þeim hlut.

Eignarhlutur Hafnarfjarðarbæjar í Hitaveitu Suðurnesja er 15,4178%. Bæjarstjórn samþykkir að selja til Orkuveitu Reykjavíkur allt að 95% hlutafjár Hafnarfjardarbæjar i HS hf. Þá samþykkir bæjarstjórn Hafnarfjarðar jafnframt að teknar verði upp formlegar viðræður við Orkuveitu Reykjavíkur um möguleg kaup bæjarfélagsins á hlut í OR.

Bæjarstjórn samþykkir að fela starfshópi sem skipaður er oddvitum þeirra stjórnmalaflokka sem sæti eiga i bæjarstjórn að leita eftir samkomulagi vid Orkuveitu Reykjavikur um hugsanleg hlutafjárskipti. Slíkt samkomulag verði i síðasta lagi gert fyrir lok febrúar 2008. Forsendur þeirra kaupa ráðist af því verðmati sem liggi fyrir á Orkuveitunni og sameiginlegri afstöðu varðandi framtíðarskipan dreifikerfis rafmagns innan lögsögu Hafnarfjarðar.

Fyrir liggur að Hafnarfjarðarbær verður þriðjungshluthafi í Suðurlindum ohf. ásamt Grindavík og Sveitarfélaginu Vogum, en formlegur stofnfundur félagsins verður haldinn nk. fimmtudag. Meginverkefni þessa nýja félags er að standa vörð um sameiginlega hagsmuni sveitarfélaganna og íbúa þeirra varðandi náttúrauðlindir og mögulega nýtingu orkuauðlinda innan lögsagnarumdæma sveitarfélaganna.

Bæjarstjórn itrekar að Hafnarfjarðarbær á og rekur bæði Vatnsveitu Hafnarfjarðar og Fráveitu Hafnarfjarðar og mun halda því eignarhaldi og þeim rekstri áfram með óbreyttu sniði .

Bæjarráði er jafnframt falið að ganga frá tillögum um ráðstöfun söluvirðis umræddra eignarhluta, þegar fyrir liggur, hvernig samkomulagi um hlutafjárskipti reiðir af og hversu stóran hluta Hafnarfjarðarbær selur í HS.

Söluverð skal vera á genginu 7.0 samanber viljayfirlýsingu frá 2. júlí sl. og uppgjör fari fram við undirritun sölusamnings innan 2ja vikna frá samkomulagi.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram eftirfarandi tillögu:
Bæjarráð samþykkir að leggja eftirfarandi til við bæjarstjórn:
Bæjarstjórn ákveður að selja Orkuveitu Reykjavíkur allan hlut Hafnarfjarðar í Hitaveitu Suðurnesja að nafnvirði 1.149.368.544 á genginu 7,0 sbr. 5. gr. samkomulags OR og Hafnarfjarðarbæjar dags. 2. júlí 2007.

Andvirðinu verði ráðstafað með eftirfarandi hætti:
1) DePfa lán sem stóð í 1.931.503.164 kr 31.8. 2007
2) Lánasjóður sveitarfélaga lántökudagur 1.12.2006 sem stóð í 412.691.104 kr 31.8.2007
3) Lánasjóður sveitarfélaga (lokadagur 1.9.2010) sem stóð í 562.628.740 kr 31.8..2007
4) Lánasjóður sveitarfélaga (uppgreiðsla heimil 1.10.2010) sem stóð í 931.022.720 kr 31.8. 2007
5) Lánas.sveitarfélaga (uppgreiðlsla. heimil fyrst 15.10.2010) sem stóð í
779.400 000 kr (í EURO) 31.8. 2007-
6) Wurtt. Hypo. (lokadagur 3.8.2010 og. uppgreiðsla ekki heimil fyrr) sem stóð 1.472.199.936 kr.(í EUR0) 31.8. 2007.

Söluandvirðið verður einungis notað til greiðslu skulda og skuldbindinga Hafnarfjarðarbæjar og áður en kemur til einstakra greiðslna ofangreindra lána verði það ávaxtað með tryggilegum hætti.
Lækkun á skuldum bæjarins og vaxtabyrði verður notað til að lækka útsvar, fasteignagjöld og aðrar álögur á bæjarbúa.