Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2005-2025 Krýsuvík, beiðni um breytingu
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 236
20. október, 2009
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025, Krýsuvík, hvað varðar staðsetningu tilraunaborhola, endurskoðaður uppdráttur dags. 22.09.2009. Lagt fram á síðasta fundi.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að senda aðalskipulagstillöguna í auglýsingu skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að senda tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar hvað varðar staðsetningu borhola í Krýsuvík, dags. 22.09.2009 í auglýsingu skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."