Eldri borgarar, niðurgreiðsla og vildarkort
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1848
27. maí, 2020
Annað
Fyrirspurn
7.liður úr fundargerð fjölskylduráðs frá 22.maí sl. Lögð fram drög að reglum um frístundastyrki eldri borgara.
Reglurnar eru uppfærðar með hliðsjón af samþykkt bæjarstjórnar um tekjutengingu á frístundastyrk eldri borgara. Öldungaráð hefur þegar lagt fram umsögn sína um tekjutengingu og því þarf ekki að vísa þessum drögum til ráðsins. Fjölskylduráð samþykkir reglur um frístundastyrki eldri borgara og sendir í bæjarstjórn til samþykktar.
Svar

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagðar reglur um frístundastyrki eldri borgara.