Aðalskipulag Hafnarfjarðar, raflínur og tengivirki.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 227
26. maí, 2009
Annað
Fyrirspurn
Tekin til umræðu tillaga um breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar flutningskerfi raforku í upplandi Hafnarfjarðar. Lögð fram frummatsskýrsla Eflu verkfræðistofu, dags. 6. maí 2009. Tillagan er aðgengileg á vefslóðunum www.sudvesturlinur.is; www.landsnet.is og www.efla.is. Ólafur Árnason og Jón Bergmundsson frá Eflu verkfræðistofu ásamt Ingólfi Eyfells frá Landsneti mættu á fundinn og kynntu.
Svar

Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna. Skipulags- og byggingaráð vísar erindinu til umsagnar umhverfisnefndar/Staðardagskrár 21 og framkvæmdasviðs. Einnig vísar ráðið erindinu til umsagnar Byggðasafns Hafnarfjarðar og ferðamálafulltrúa varðandi þau atriði sem þau varðar. Ráðið felur jafnframt skipulags- og byggingarsviði að gera tillögu að umsögn um frummatsskýrsluna.