Aðalskipulag Hafnarfjarðar, raflínur og tengivirki.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 233
8. september, 2009
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar flutningskerfi raforku til samræmis við áætlanir Landsnets um styrkingu raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi og samkomulag Hafnarfjarðar og Landsnets þar um, sem samþykkt var af bæjarstjórn 11.11.2008. Breytingarnar eiga við raflínur og jarðstrengi frá Geithálsi og Sandskeiði að núverandi og fyrirhuguðum tengivirkjum í Hafnarfirði og áfram þaðan að álverinu í Straumsvík og til Suðurnesja. Aðalskipulagstillagan byggir á samþykkt bæjarstjórnar um gerð skipulagsins dags. 11.11.2008. Lögð fram umhverfisskýrsla Eflu verkfræðistofu dags. 29.07.2009. Sviðsstjóri skýrir frá kynningarfundi um aðalskipulagstillöguna sem haldinn var 07.09.2009.
Svar

Sviðsstjóri gerði grein fyrir umræðum á kynningarfundi, sem haldinn var 07.09.2009.