Aðalskipulag Hafnarfjarðar, raflínur og tengivirki.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 236
20. október, 2009
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar flutningskerfi raforku til samræmis við áætlanir Landsnets um styrkingu raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi og samkomulag Hafnarfjarðar og Landsnets þar um, sem samþykkt var af bæjarstjórn 11.11.2008. Breytingarnar eiga við raflínur og jarðstrengi frá Geithálsi og Sandskeiði að núverandi og fyrirhuguðum tengivirkjum í Hafnarfirði og áfram þaðan að álverinu í Straumsvík og til Suðurnesja. Aðalskipulagstillagan byggir á samþykkt bæjarstjórnar um gerð skipulagsins dags. 11.11.2008. Lögð fram umhverfisskýrsla Eflu verkfræðistofu dags. 18.10.2009. Haldinn var forstigskynningarfundur 07.09.2009. Áður lagt fram álit Skipulagsstofnunar á frummatsskýrslu dags. 17.09.2009 og endanleg matsskýrsla Eflu og Landsnets dags. 10.08.2009. Frestað á síðasta fundi.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að senda aðalskipulagstillöguna í auglýsingu skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að senda tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar hvað varðar flutningskerfi raforku, dags. 10.08.2009 ásamt umhverfisskýrslu dags. júlí 2009  í auglýsingu skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."