Vinnuhópur um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Stokkseyri
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarráð nr. 12
6. október, 2022
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 3. fundi frístunda og menningarnefndar, frá 20. september, liður 6. Vinnuhópur um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Stokkseyri.
Lagt var til að stofnaður yrði vinnuhópur um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Stokkseyri. Nefndin lagði til við bæjarráð að skipaður yrði vinnuhópur um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Stokkseyri sem yrði stofnaður sem fyrst.
Svar

Bæjarráð samþykkir samhljóða að endurskipað verði í starfshóp um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Stokkseyri. Hópinn skipa Sveinn Ægir Birgisson D-lista, Þórhildur Dröfn Ingvadóttir D-lista og Herdís Sif Ásmundsdóttir S-lista. Með hópnum starfa sérfræðingar af mannvirkja- og umhverfissviði og fjölskyldusviði. Hópurinn kallar til sín hagsmunaaðila úr nærsamfélaginu eftir þörfum. Bæjarráð felur bæjarstjóra að klára erindisbréf.