Samráðsgátt - breyting á reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarráð nr. 10
15. september, 2022
Annað
Fyrirspurn
Þann 8. ágúst sl. birti mennta- og barnamálaráðuneytið í samráðsgátt drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum, nr. 907/2005. Umsagnafrestur var til 29. ágúst sl. og skiluðu starfsmenn á fjölskyldusviði Árborgar umsögn um reglugerðardrögin.
Svar

Lagt fram til kynningar