Eyrargata Eyrabakka- Umsókn um framkvæmdaleyfi. (endurnýjun yfirborðs götu)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 4
7. september, 2022
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 5. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 31. ágúst, liður 6. Eyrargata Eyrabakka- Umsókn um framkvæmdaleyfi. (endurnýjun yfirborðs götu)
Mál áður á dagskrá skipulags- og byggingarnefndar 27.7.2022: María Dís Ásgeirsdóttir f.h. Mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við endurnýjun yfirborðs götu og lagningu gangstétta á um 260m kafla Eyrargötu á Eyrarbakka, samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Vegkaflinn afmarkast frá húsi nr.42, að vestan og austur að húsi nr. 49 við Eyrargötu. Nú er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu gangstétta, og hafa borist ítarlegri gögn.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti umsókn um framkvæmdaleyfi, og lagði til við Bæjarstjórn Árborgar að umsókn yrði samþykkt, og skipulagsfulltrúa yrði falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Svar


Bragi Bjarnason, D-lista tekur til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum umsókn um framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við endurnýjun yfirborðs götu og lagningu gangstétta á um 260m kafla Eyrargötu á Eyrarbakka og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.